Á morgun var ég að blaða í gömlum Lesbókum Morgunblaðsins fyrir Kolviðarhólsverkefnið mitt í vinnunni. Þar rakst ég á grein frá 1962 um sviflestir og möguleika þess að setja upp slíkt kerfi í Reykjavík.
Sviflestir eru sem sagt lestir sem hanga niður úr einteinungum í loftinu.
Höfundurinn var meira að segja búinn að útbúa kort af Reykjavík með mögulegu leiðakerfi inn að Elliðaám teiknuðu inn á það.
Þetta er það svalasta sem ég hef séð lengi. Væri það ekki magnað ef við hefðum komið okkur upp sviflest á sjöunda áratugnum?
Á sínum tíma lýsti ég því yfir að ef ég myndi drullast í doktorsnám – sem ég mun ekki gera – þá ætti ritgerðin að heita: „Járnbrautin í sögu Íslands“. Hugmyndir Indriða Reinholts á öðrum áratugnum um gerð sporvagnakerfis í Reykjavík hefðu fengið góða umfjöllun og sviflestirnar augljóslega líka.