Sá er hér ritar verður spurningahöfundur á pöbbkvissinu á Grand rokk kl. 17:30 í dag. Keppnin hefst stundvíslega og verður vonandi skemmtileg.
# # # # # # # # # # # #
Tæknisögukennslan í gær var bráðskemmtileg. Við Sverrir náðum að lýsa stuðningi við bændurna sem mótmæltu símanum 1905 og Hannes Hafstein í sama tímanum – á afar mismunandi forsendum þó.
Á næstu viku mun ég messa einn yfir nemendunum um sögu Gasstöðvarinnar.