Þetta blogg er bara prufa til að sjá hvort Palla hafi ekki örugglega tekist að flytja Kaninkuna á nýja staðinn. Vonandi heyra bilanir sögunni til og skæluskjóðurnar sem kvarta undan því að geta ekki lesið þessa síðu hvenær sem þeim sýnist þagna.
Og meðan ég man – síðasta færsla hvarf við flutningana, ekki vegna þess að ég hafi tekið hana út eða hún verið ritskoðuð á nokkurn hátt, enda ekkert safaríkt í henni annað en hefðbundnar bölbænir í garð Moggabloggsins – sem mætti stegla!