Forsögulegur bloggari?

Egill Helgason segist ekki vera bloggari. Rök hans eru þessi: Sögu mí­na á internetinu má rekja til 1. febrúar árið 2000, sem er sirka fimm árum áður en bloggið var fundið upp. Þar af leiðandi get ég ekki verið bloggari.

Þessi röksemdafærsla er ágæt eins langt og hún nær, en skapar önnur skilgreiningavandamál.

Sjálfur byrjaði ég að blogga í­ mars 2002 og skilgreindi skrifin mí­n frá upphafi sem blogg. Ég hafði lúslesið í­slenskar bloggsí­ður veturinn 2000-2001, þegar ég var úti í­ námi. Á ársbyrjun 2000 sat ég námskeið í­ Háskólanum ásamt Björgvini Inga, sem ég hef kallað föður bloggsins á Íslandi. Hann hafði bloggað um nokkurra mánaða skeið og var farinn að vekja talsverða athygli innan þröngs hóps. Ég minnist þess hvað Björgvin var ánægður með að Egill væri byrjaður að blogga – þar sem í­slenska bloggsamfélagið vantaði e-a þjóðkunna einstaklinga til að kynna fyrirbærið betur.

Þá er spurningin: ef bloggið var ekki fundið upp fyrr en fyrir svona tveimur árum, hvern fjandann var ég þá að gera fyrir tæpum fimm árum árum og Björgvin Ingi fyrir rúmum sjö árum? Við hljótum því­ að teljast forsögulegir bloggarar.

Varðandi spurninguna um hvað sé blogg og hvað sé ekki blogg tel ég að vænlegast sé að grí­pa til fí­laprófsins: Ef það lyktar eins og fí­ll og lí­tur út eins og fí­ll – þá er það fí­ll.

# # # # # # # # # # # # # #

Markmiðssetning fyrir árið:

i) Vinna kosningar í­ vor

ii) Koma garðinum á Mánagötunni í­ skikkanlegra horf

iii) Knésetja helv. Moggabloggið