Rétt eftir þrettándann ár hvert keyra starfsmenn Reykjavíkurborgar um göturnar og hirða jólatré sem íbúarnir skilja eftir fyrir utan heimili sín. Þetta gerist yfirleitt svona 8.-9. janúar.
Á kjölfarið eru svo sagðar fréttir af þessari hreinsun – sem verður til þess að silakeppirnir sem ekki nenntu að taka niður tréð á þrettándanum rjúka til og henda hræinu út á götu 11.-12. janúar. Og þar liggja þau.
Held að ég hafi talið sjö tré þegar ég gekk út í Friðarhús í morgun. Þau munu væntanlega liggja þarna til vorsins, þar sem skúnkarnir sem hentu þeim vilja ekkert af þeim vita. Urr!
# # # # # # # # # # # # #
Hvernig dettur ígústi Einarssyni í hug að fara fram á að fá leyfi frá Háskólanum meðan honum þóknast að stýra annarri háskólastofnun? Mun hann kannski sjálfur sem rektor á nýja líða undirmönnum sínum að fara í ótímabundin leyfi og fylla stöður þeirra með afleysingarfólki – án þess að vita hvort þeir snúi aftur eftir 2 ár, 10 ár eða aldrei?
Ég skil Kristínu Ingólfsdóttur vel að láta henda manninum öfugum út.
Engin verðlaun fyrir að giska á hverju öðru mætti henda öfugu út…