Það er líf og fjör á póstlista Femínistafélagsins vegna framboðs Höllu til formanns KSí. Það er þó greinilegt af umræðunum að þátttakendurnir í þeim eru mjög misvel með á nótunum í málefnum fótboltans.
Â
Forysta KSÁ fær á baukinn í þessum skrifum, einkum fyrir að sinna kvennaboltanum illa en hlaða undir rassinn á körlunum. Margt í framkomu Eggerts Magnússonar & co. hefur svo sem boðið heim þeirri gagnrýni
Â
Einhverjir femínistarnir hafa gripið til samanburðar á stöðu karla- og kvennalandsliðsins, þar sem kvennaliðið er í 21. sæti á heimslista FIFA en karlaliðið er í kringum 100. sæti. Þannig hefur verið vísað til þess að karlalandsliðið sé fyrir neðan Líbýu og Malaví. Þessi rök eru þó vafasöm.
Â
Hvers vegna ættu Líbýa og Malaví EKKI að vera betri í fótbolta en Íslendingar? Nú er knattspyrna vinsælasta íþróttagreinin í báðum löndum, en íbúar þeirra nærri sex milljónir annars vegar en þrettán milljónir hins vegar. Er ekki talsverður hroki fólginn í að hnussa yfir því að Ísland sé á sama reki og þessi ágætu Afríkulönd?
Â
Væri ekki nær að spyrja hvers vegna kvennalandslið Líbýu og Malaví eru svona miklu lakari en það íslenska? Líbýa hefur ekki einu sinni á kvennalandsliði að skipa og Malaví er við botn FIFA-listans.
Â
ístæðan er vitaskuld sú að staða kvennaíþrótta er herfileg í þriðja heiminum. Suður-Ameríka er líklega sú heimsálfa þar sem knattspyrnuáhuginn er mestur, engu að síður er kvennaknattspyrna varla til í álfunni, ef Brasilía er undanskilin. Knattspyrnan hefur blómstrað í Afríku síðustu 20 árin, en Nígería (25. sæti) og Ghana (47. sæti) eru einu fulltrúar álfunnar á topp-50 lista kvenna.
Â
Kvennafótbolti er því miður, enn sem komið er, íþrótt ríkra Vesturlandabúa. Íslenska kvennalandsliðið er sem fyrr segir í 21. sæti. Á sætunum 20 þar fyrir ofan eru 13 Evrópulönd, auk velmegunarsamfélaganna Bandaríkjanna, Kanada, ístralíu og Japans. Einungis þrjú þriðja heims lönd eru í þessum hópi: Norður-Kórea, Kína og Brasilía.
Â
Það er því álitamál hversu gleðilegt það er í raun og veru að dvergríkið Ísland sé svo ofarlega á FIFA-styrkleikalistanum í kvennaboltanum. Á raun er það fyrst og fremst vitnisburður um veika stöðu kvenna í þriðja heiminum. Þegar Líbýa og Malaví fara fram úr okkur á þeim lista líka, þá verður það bara hið besta mál!
Â
# # # # # # # # # # # # #
Â
Það er greinilega urgur í Moggabloggurum, sem eru strax farnir að kvarta undan kúgunarvaldinu. Byltingin er á næsta leyti og þá verður Moggabloggið fyrst upp að múrnum.