Ökklahlífin sem Ragnar lánaði mér virðist hafa gert sitt gagn. Ökklinn er amk furðulítið aumur. Ekki skil ég þó í mönnum sem nenna að spila svo árum skiptir vafðir inn í svona helvíti.
Var í marki allan tímann, aldrei þessu vant. Varði 2-3 fasta bolta með höfðinu – sem í bland við kvefið er búið að framkalla hausverk. Ekki verður á allt kosið.
# # # # # # # # # # # # #
Síðast þegar við Sverrir kenndum vísindasögunámskeiðið í HÁ á sama tíma og stórmót í handbolta bar uppá – skrópuðu flestir nemendurnir í fyrirlesturinn okkar. Við sáum fram á að sagan endurtæki sig á morgun, þegar við ætluðum að ræða um sögu stærðfræðinnar á sama tíma og Túnis-leikurinn.
Við erum eldri en tvævetur og sömdum um að fella niður tímann, en bæta við kennsluna næsta mánudag. Stefni sjálfur að boltaglápi í Friðarhúsi.
# # # # # # # # # # # # #
Luton vann víst heppnissigur á QPR í bikarnum í kvöld. Iss – QPR náði jafntefli í fyrri viðureigninni með svindlmarki, svo þetta jafnast út.
Það þýðir að Luton tekur á móti Blackburn í bikarnum á laugardaginn, í leik sem væntanlega verður á Sýn. Fagna því allir góðir menn.
# # # # # # # # # # # # # #
Nú er hlýtt úti og ísinn að bráðna. Megi Moggabloggið falla oní vök.