Top Secret

Frásögn Erlu Hlynsdóttur af fundi hjá Framtí­ðarlandinu í­ gærdag er kostuleg lesning:

Seinnipart dags sat ég lokaðan fund meðlima Framtí­ðarlandsins. Var þar rædd sú hugmynd að bjóða fram til næstu Alþingiskosninga, og voru skoðanir afar skiptar. Meðal annars voru uppi vangaveltur um að erfitt væri að ræða mögulegt framboð þar sem engin stefna lægi á borðum. Við því­ fengust þau svör að stefna hefði þegar verið mótuð, og að hana væri að finna í­ möppu sem ein forsvarskonan hefði undir höndum. Fyrir fundinn hefði þó verði ákveðið að halda þessari stefnu frá meðlimum Framtí­ðarlandsins til að koma í­ veg fyrir að fjölmiðlar tættu hana í­ sig.

Um daginn kvartaði Ingibjörg Sólrún yfir að Samfylkingunni væri refsað fyrir að vera of pólití­sk. Forsvarsfólk Framtí­ðarlandsins ætlar greinilega ekki að gera þau mistök. Dásamleg hugmynd að framboð til Alþingis hafi stefnu sem sé leyndó…

En þarna er þessum fjölmiðlum rétt lýst. Ef blöðin kæmust í­ stefnuskránna myndu þau örugglega tæta hana í­ sig – helví­tin á þeim! Nær væri að fjölmiðlarnir tættu í­ sig Moggabloggið.