Á dag ákvað Mogginn að sniðugt væri að birta lykilorð allra þeirra sem skráðir væru á Moggabloggið. Þetta var ekkert sérstaklega vinsælt hjá sumum Moggabloggurum, sem höfðu valið sér sömu lykilorð þarna og á netbankanum sínum, hotmailnum og ég veit ekki hvað.
Stærri menn en ég hefðu að þessu tilefni sagt: „Sagði ég ykkur ekki?“
En hér var víst um einstök tæknileg mistök að ræða og verður ekki endurtekið – yeah, right!
Samskiptasaga Moggans og netsins hefur alla tíð verið með ólíkindum – og einkennst af einstökum molbúahætti Moggans.
Ég man þá tíð þegar vaskir netáhugamenn tóku sig til og útbjuggu í fyrsta sinn RSS-strauma fyrir mbl.is. Viðbrögð Moggans voru þau að senda lögfræðinga á viðkomandi einstaklinga og saka þá um „ritstuld“!!!!!!
Sjálfur kynntist ég þursahætti Moggans í netmálum fyrir tæpum áratug, þegar ég var í hópi manna sem stofnaði vefritið www.mogginn.com. Við birtum gamansamar greinar um aðskiljanleg málefni, þar á meðal skrifaði ég greinaflokkinn „Stók er djók“, þar sem færð voru rök fyrir því hvers vegna fólk ætti EKKI að kaupa hlutabréf í Stók.
Mogginn kallaði til lögfræðiteymi. Við bentum á að við værum síða sem hýst væri í Bandaríkjunum – þeim svöruðu: Það skiptir ekki máli, vörumerkið Mogginn er alþjóðlegt – og allir sem nota það, hvar sem er í heiminum eru að brjóta lög.
Við bentum lögfræðingum Mbl.is á að vörumerkið „Mogginn“ væri hvergi skráð – og að raunar mætti hvergi finna orðið „Mogginn“ í prentútgáfu blaðsinsi.
Þá kom á þá fát…
Eftir smá umhugsun komu lögfræðingarnir til baka og sögðu: Við höfum notað vörumerkið „myndasögur Moggans“ í barnablaðinu okkar í mörg ár – og það sannar að við eigum hugtakið. Auk þess skiptir það ekki máli, því við getum haldið ykkur í dómsmálum í mörg ár án þess að finna fyrir því – hafið þið ráð á að borga lögfræðingum í mörg ár?
Þannig lauk þeirri rimmu.
Hálfum mánuði síðar ákvað lögfræðideild írvakurs að best væri að festa eignarréttinn á „Mogga“-nafninu betur í sessi. Þá var stofnuð „Mogga-búðin“, sem var netverslun sem seldi Mogga-vörur. Á boðstólnum var: klukka, bolur, derhúfa, frisbí-diskur og kaffibolli.
Megi Moggabloggið drukkna í Mogga-kaffibolla!