Þorkell Máni

Á framboðslista Frjálslynda flokksins í­ öðru Reykjaví­kurkjördæminu er maður að nafni Þorkell Máni. Það er ekki Þorkell Máni útvarpsmaður á X-inu og gamall flokksbróðir minn úr Alþýðubandalaginu. Nei, þetta er allt annar Máni.

Og það er raunar af mörgum að taka. Leit í­ þjóðskrá leiðir í­ ljós að ellefu í­slenskir karlar heita Þorkell Máni. Sá elsti fæddur 1960.

Þótt Máni sé í­ hópi vinsælli millinafna í­ í­slensku, eru þetta augljóslega fleiri Þorkatlar Mánar en búast mætti við. ístæðan er sú að nafnið á sér sögulegar rætur – þótt eitthvað segi mér að ekki hafi foreldrar allra þeirra ellefu sem nú bera nafnið gert sér grein fyrir þeirri tengingu.

Þorkell Máni Þorsteinsson var lögsögumaður á Alþingi á seinni hluta tí­undu aldar. Hann var sonarsonur Ingólfs Arnarsonar, ef marka má heimildir. Þorkell Máni naut vinsælda í­ upphafi tuttugustu aldar og var tví­mælalaust í­ hópi þeirra persóna frá söguöldinni sem fólk átti almennt að þekkja. ístæðurnar voru svo sem ekki augljósar. Hann var enginn Grettir, Njáll eða Egill Skallagrí­msson – litrí­k persóna í­ magnaðri Íslendingasögu. Eiginlega var hann aðallega frægur fyrir að vera frægur. Hálfgerð Paris Hilton landnámsaldar?
Með dví­nandi áhuga á Íslendingasögunum og gullöldinni til forna, vildu minna þekktar hetjur falla í­ gleymskunnar dá. Þorkell Máni lenti í­ þeim hópi.

Eitt sinn ákvað ég að spyrja um Þorkel Mána í­ Gettu betur, enda áleit ég að hann væri þrátt fyrir allt ennþá það þekkt persóna að veðja mætti á að skarpir framhaldsskólanemar gætu giskað á nafnið.

Ég spurði sem sagt um nöfn nokkurra gatna í­ Norðurmýrinni – þar á meðal Mánagötu og eftir hverjum þær væru nefndar. Á ljós kom að krakkarnir höfðu aldrei heyrt um þennan Þorkel Mána getið og urðu eiginlega reið yfir að spurt væri um svona nóboddí­ úr sögunni. 30-40 árum fyrr hefði þetta lí­klega þótt skí­tlétt spurning. Svona geta sögulegar persónur hratt gleymst.

# # # # # # # # # # # # #

Nenni ekki að semja aðra bölbæn fyrir Moggabloggið. Sú frá því­ fyrr í­ kvöld verður að duga.