Einu sinni voru Alphaville stórir í Japan. Nú stefnir í að skrifari þessarar síðu hljóti sínar fimmtán mínútur frægðar í Noregi.
Síðdegis kom fréttamaður frá norska sjónvarpinu (NR2 held ég) og tók við mig viðtal á útidyratröppunum á Mánagötunni. Umfjöllunarefnið var vitaskuld þessi geggjaða hugmynd um norska herinn á Íslandi.
Fréttamaðurinn var greinilega vel undirbúinn og búinn að kynna sér málið furðuvel. Mér sýnist þeir norsku ætla að slá íslenskum fjölmiðlum rækilega við í þessu máli. Umfjöllun þeirra hefur ekki verið uppá marga fiska.
# # # # # # # # # # # # #
Barnið er með magakveisu með tilheyrandi hita og uppsölum. Flestar flíkur eru nú útældar. Það verður víst minna úr verki í vinnunni en til stóð, þess í stað sett í fleiri þvottavélar en búist var við.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag skilaði ég af mér tímafreku verkefni sem ég lét plata mig útí. Það var að halda utan um meðmælendalistana fyrir VG í Reykjavíkurkjördæmunum. Meðmælendasöfnunin er klassískt kosningaverkefni sem alltaf lendir í tímaþröng og vitleysu. Persónulega er ég á móti þessu meðmælendakerfi.
En þetta er í höfn og flokkurinn ætti að fá að bjóða fram og vinna frægan sigur í vor.
Megi þjóðin hafna Moggablogginu!