Plögg:
Á hugum sumra eru stjórnmál eins konar borðspil, líkt og Matador (sem því miður nefnist Monopoly í nýjustu útgáfum). Fáir hafa þó gengið jafnlangt í þessu efni og útgefendur “Kjördæmaspilsins†frá árinu 1959. Það ár var í fyrsta sinn kosið eftir nýrri kjördæmaskipan og gátu spilafíknir stjórnmálaáhugamenn tekið forskot á sæluna með hjálp þessa – tja, óvenjulega borðspils.
Ekki er með góðu móti hægt að kalla Kjördæmaspilið skemmtilegt spil. Ef það væri sjónvarpsmynd, yrði hún væntanlega sögð “í léttum dúrâ€.
Loksins fær Kjördæmaspilið uppreisn æru, því mánudagskvöldið 7. maí kl. 20 verður efnt til pólitísks spilakvölds í húsnæði Vinstri grænna í Suðurgötu. Valdir hafa verið fyrirliðar (þinglóðsar) fyrir hvern gömlu fjórflokkanna og geta gestir og gangandi skipað sér í sveit með þeim. Meðan á spilamennsku stendur munu fyrirliðarnir sjá um stjórnmálaskýringar í anda sjötta áratugarins. Þeir eru:
írmann Jakobsson: Framsóknarflokki
Björn Reynir Halldórsson: Sjálfstæðisflokki
Stefán Pálsson: Alþýðuflokki
Sverrir Jakobsson: Alþýðubandalagi
Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag kvöddum við Luton-menn næstefstudeild með stórum skelli. Við náðum þó ekki að tryggja okkur trésleifina – því Leeds lenti í greiðslustöðvun og tók því á sig stigafrádrátt upp á 10 stig.
Jæja, Luton-Leeds verður greinilega stórleikur næsta tímabils…
# # # # # # # # # # # # #
Á morgun fór ég í fótbolta með vöskum hópi Akureyringa. Meðal mótherjanna var frægur júdókappi og höfundur skemmtiefnis fyrir sjónvarp. Hann er tröll að burðum.
Nú get ég amk stært mig af því að hafa farið í tæklingu við frægan íþróttagarp og sloppið úr henni óbrotinn.
Megi Venni páer lumbra á Moggablogginu.