Vikan, 12. ágúst 1912:
Ung sundkennslu-kona sænsk, varð vitskert alt í einu meðan hún var að kenna 30 stúlkum sund í sjó við Helsingjaborg í Svíþjóð. – Hún synti út í sjó og skoraði á stúlkurnar að fylgja sjer og synda alla leið til Helsingjaeyrar í Danmörku; þær gegndu því allar nema ein, er synti til lands og sótti hjálp. Margir vjelbátar voru settir á flot og eltu sundmeyjarnar langt á haf út. Stúlkurnar náðust allar lifandi, og kennslukonan náðist líka, er hún var að sökkva rjett við Danmerkur strönd. Var hún þegar flutt á danskan >klepp< .
Sumir eru bara fæddir leiðtogar!
Megi Moggabloggið fara í sænskan sundtíma.