Vondur dagur í boltanum. Luton tapaði úti gegn Leeds, sem virðist vera með langöflugasta lið deildarinnar. Skrítið þó að sjá Tresor Kandol skora í hverjum leik fyrir Leedsara, hann þótti afleitur hjá okkur fyrir nokkrum misserum og var látinn fara.
Drátturinn í 32-liða úrslit deildarbikarsins reyndist sömuleiðis antíklímax. Heimaleikur gegn Charlton er um það bil eins óspennandi og hugsast getur. – Og þó, ætli næsti leikur: heima gegn Northampton í HörpuSjafnar-bikarnum verði ekki að teljast enn minna æsilegur…