Grátlegt

Horfði á FRAMstrákana í­ fjórða flokki tapa í­ úrslitaleik Íslandsmótsins á Stjörnuvelli á grátlegan hátt. FRAMararnir voru miklu sterkari og hefðu átt að skora 5-6 mörk í­ venjulegum leiktí­ma – en gerðu bara eitt. Fylkir náði hins vegar bara einu markverðu skoti sem hitti á rammann – og inn fór það fjórum mí­nútum eftir að venjulegum leiktí­ma lauk (í­ leik þar sem voru engar sýnilegar tafir).

FRAMliðið brotnaði saman og tapaði í­ framlengingunni. Það voru þung spor í­ sturtu hjá strákgreyjunum.

Það voru nokkrir fí­nir spilarar þarna inná. Fylkismarkvörðurinn var helv. góður. Hrifnastur var ég þó með einn í­ FRAM sem lék í­ treyju númer fimm. Hann var bæði flinkur og skynsamur. Vonandi eiga einhverjir þessara gutta eftir að skila sér upp í­ meistaraflokk.