Var að ljúka við að horfa á magnaðan fótboltaleik milli Frakka og Skota. Þegar skoska landsliðið er í essinu sínu halda því engin bönd – raunar er liðið yfirleitt því betra sem stjörnurnar innanborðs eru færri. Það var gaman að sjá gamla „kunningja“ eins og fyrrum Luton-manninn Graham Alexander brillera á heimavelli franska landsliðsins.
Ef Skotar komast í úrslitakeppnina þarf ég ekki lengur að hafa áhyggjur af því að velja mér uppáhaldslið.
# # # # # # # # # # # # #
Talandi um Skota – nýja Rebus-bókin kom út í síðustu viku. Hún mun vera sú síðasta í seríunni. Ef erlendar bækur væru markaðsettar í íslenskum bókabúðum (aðrar en Harry Potter) þá hefðu verið gluggaútstillingar og fyrstu eintökin seld daginn eftir að bókin fór í almenna sölu í Bretlandi. Á staðinn verður henni stillt fram í kyrrþey eftir hálfan mánuð í Pennanum/Eymundsson og menn telja sig miklar kempur að selja 50-60 eintök.
# # # # # # # # # # # # #
Og talandi um fótbolta – í íþróttablaði frá sjötta áratugnum las ég frásögn af furðulegu atviki í knattspyrnuleik. Þar skoraði knattspyrnumaður gott og gilt mark – án þess að stíga nokkru sinni fæti á leikvöllinn í leiknum. Og nú er spurt – hvernig gat það gerst?