Þegar Ingibjörg Sólrún var borgarstjóri kom það stundum fyrir að stuðningsmenn hennar (og raunar andstæðingar líka) sæju ástæðu til að tala niður til hinna borgarfulltrúanna í Reykjavíkurlistanum og létu í það skína að þar færi pólitískt léttvigtarfólk sem gæti hvorki né vildi standa upp í hárinu á leiðtoganum. Vinsælt uppnefni var: Dvergarnir sjö.
Að lokum fór það nú samt svo að almennu borgarfulltrúarnir settu borgarstjóranum stólinn fyrir dyrnar. Og það sem meira var – ekki varð vart við neinar breytingar hjá borginni við það að skipt væri um borgarstjóra.
En ef almennu borgarfulltrúarnir í R-listanum voru dvergarnir sjö – hvað má þá segja um dvergana sex, almennu borgarfulltrúana í Sjálfstæðisflokknum? Trúir því nokkur að þeir muni standa gegn Vilhjálmi Þórmundi?
Ætli „blómálfarnir sex“ sé ekki réttara viðurnefni?