Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar bárust í dag. Þar eru kynntar niðurstöður útboðs og birtar yfirlitsmyndir af fyrirhuguðum framkvæmdum við Miðfjarðarveg, nánar tiltekið tenginguna milli Laugarbakka og Hringvegarins. Þetta eru góðar fréttir, enda núverandi tenging alltof kröpp og raunar stórhættuleg.
Jafnframt er birt kort í blaðinu sem sýnir hversu mikið hefur verið unnið í að leggja bundið slitlag á sveitavegi á Suðurlandi. Það er lygilega mikið, þótt enn séu áberandi gloppur – t.d. er furðulegt að enn sé ekki komið slitlag umhverfis Þingvallavatn.
Loks er lítil klausa um að lokið sé forvali á verktökum vegna tilboðs í gerð Óshlíðarganga. Enn og aftur vil ég hrósa Vegagerðinni fyrir að standa frábærlega að kynningarmálum sínum. Aðrar opinberar stofnanir ættu að taka þetta til fyrirmyndar.
# # # # # # # # # # # # #
Luton fokkaði upp leik kvöldsins í HörpuSjafnar-bikarnum. Vorum 1:3 yfir þegar 17 mín. voru eftir, en töpuðum 4:3. $/&%/(#%