Eiríkur smiður hefur lokið störfum á Mánagötunni. Hann kom seinnipartinn og setti upp þennan fína Axis-fataskáp í drasl/bóka/gestaherberginu, glæsilegar bókahillur á ganginn og setti plötu fyrir gatið í svefnherberginu sem ég nennti aldrei að sparsla í.
Útkoman er sallafín. Eiríkur er listasmiður og innréttingarnar frá Axis standa alltaf fyrir sínu. Eitthvað segir mér samt að bókaskápavandræði heimilisins séu ekki að baki. Síðast í dag áskotnuðust mér átta nýjar bækur.