Ritskoðun er tískuumræðuefnið um þessar mundir. Það leiðir hugann að Kvikmyndaeftirliti ríkisins, sem var og hét. Hvenær hætti kvikmyndaskoðunin? Fyrir fimm árum? Tíu? Fimmtán? – Svona rennur þetta allt saman í kollinum á manni.
Ef ég man rétt voru miðarnir frá Kvikmyndaskoðun fjórir talsins. Sá hvíti var leyfður öllum aldurshópum. Undir það féllu helst teiknimyndir, því – a.m.k. í minningunni – voru langflestar myndir með græna miðann, bannað innan tólf. Það þurfti ekki að segja neitt um viðkomandi mynd. Ætli kríterían hafi ekki verið þannig að ef einhver dó í myndinni var græni miðinn kominn á loft.
Rauði miðinn þýddi að myndir væru bannaðar innan sextán – og langflestar myndir sem nokkur akkur þótti í að sjá fengu þann miða. Svo gengu flökkusagnir um myndir sem væru með sérstakar aukamerkingar – væru extra-mikið bannaðar, jafnvel innan átján. Þær áttu að hafa svartan miða, sem sumir sögðust hafa séð með eigin augum…
Guli miðinn var fágætastur. Gott ef það var ekki „bannað-innan-fjórtán“ miðinn. Það þýddi að í slíkum myndum dóu kannski einhverjir, en líkið var ekki sýnt og það voru heldur ekki kvenmannsbrjóst.
Guli flokkurinn var eiginlega alveg glataður… ætli kvikmyndadreifingaraðilar hafi getað áfrýjað ef myndirnar þeirra lentu í gulu deildinni?