Að sjálfsögðu!

Hér er athyglisverð frétt þar sem fram kemur að Ardbeg hafi verið útnefnt besta viský í­ heimi í­ nýlegu vali.

Þetta eru engin tí­ðindi fyrir lesendur þessarar sí­ðu – því­ ég hef margoft haldið þessu fram.

Og það sem meira er – það er hægt að fá Ardbeg í­ rí­kinu, amk. Heiðrúnu og Kringlunni.  Það ættu allir góðir menn að kaupa!

# # # # # # # # # # # # #

Rakst á það í­ fundargerð knattspyrnudeildar Fram frá árinu 1977 að maður að nafni Alex Miller lýsti áhuga sí­num á að koma til Íslands og leiðbeina öllum flokkum félagsins um mánaðarskeið. Ekkert varð úr þessu, þar sem tí­minn sem hann var laus hentaði Frömurum ekki vel.

Nú veit ég ekkert um þennan náunga – en skilst að Liverpool-menn þekki einhver deili á honum…