Er það að bera í bakkafullann lækinn að halda áfram að fjalla um stráka- og stelpuliti? Kannski – en hér er flott grein eftir konu sem heldur með Liverpool sem er fjúríus yfir því að reynt sé að pranga bleikum Liverpool-söluvarningi inn á stuðningskonur félagsins.
Liverpool er rauðklædda liðið og bleikar Liverpool-húfur eða flíspeysur eru drottinssvik að hennar mati.
Skemmtilega skrifuð grein – þótt væntanlega muni einhverjir fýlustrumpar úthrópa höfundinn sem sturlaðan feminista sem þurfi að stjaksetja…