Málsverðurinn sem Nanna Rögnvaldar töfraði fram í Friðarhúsi í gærkvöldi var magnaður. Kjötið í ungversku gúllassúpunni var nautaskankar – sem mun vera ódýrasta kjötið á markaðnum en jafnframt það besta í svona súpu. Ég hef aldrei borðið jafn meyrt kjöt. Það hlýtur að hafa verið látið sjóða í hálfan sólarhring.
Ingibjörg Haraldsdóttir las úr endurminningarbók sinni, en fyrstu kaflar hennar gerast einmitt á Snorrabrautinni á næstu grösum við Friðarhúsið.
Stemningin var með besta móti – og hagnaðurinn ágætur. Ætli hann standi ekki undir fimm prósentum af eftirstöðvunum af bankaláninu?
# # # # # # # # # # # # #
Sam Parkin var keyptur til Luton með ærnum tilkostnaði – að því er mig minnir fyrir síðasta tímabil. Hann hefur verið meiddur síðan.
Á dag kom hann inn sem varamaður í sínum fyrsta deildarleik í óratíma. Og skoraði jöfnunarmarkið gegn Leeds á 90. mínútu.
Það eru fyrstu gleðilegu fréttirnar í viku sem einkum hefur snúist um fréttir af því að breski skatturinn sé mögulega að knýja okkur í gjaldþrot.
# # # # # # # # # # # # #
Framstelpurnar unnu Val í gær. Nú er maður loksins farinn að trúa…
Verð að mæta á FH leikinn í næstu viku.