Hvenær verða Evrópuríki í raun og veru sjálfstæð? Er það þegar nógu margir utanríkisráðherrar hafa samþykkt sjálfstæðisyfirlýsingar þeirra? Varla – ég held að eðlilegri skilgreining sé að miða við daginn sem þau senda inn eigið landslið í forkeppni EM eða HM í fótbolta. Samkvæmt því verður Kosovo væntanlega fyrst „alvöru“ land þegar forkeppnin fyrir EM 2012 hefst.
Eftir það sem á undan er gengið, var ekki við öðru að búast en að Kosovo myndi skiljast frá Serbíu. Sú spurning vaknar hins vegar hvort ekki hefði verið vænlegra til lengri tíma litið að krukka í landamærum þessa nýja ríkis? Ég hef í það minnsta séð því haldið fram að tiltölulega litlar breytingar hefði þurft að gera á landamærum Serbíu og Kosovo til að tryggja niðurstöðu sem meiri líkur hefðu verið á sátt um. Hvort það er rétt veit ég ekki.
En stærri spurning er hvaða áhrif sjálfstæði Kosovo kann að hafa varðandi kröfuna um sjálfstætt ríki Kúrda? Dr. Jawad Mella er áhrifamikill talsmaður kúrdneskra þjóðernissinna. Á heimasíðu hans er að finna ýmis skrif um Kúrda-málið og sögulegar réttlætingar fyrir stórveldisstöðu þeirra.
Hér má sjá uppdrátt hans af Kúrdalöndum – þar sem búið er að setja Kúrdistan inn á landakortið.
Neðarlega á þessari síðu gengur hann þó lengra og dregur upp hugmynd að nýju landakorti fyrir Mið-Austurlönd. Það eru svo sannarlega róttækar hugmyndir – en vandséð hvernig þeim mætti koma í gegn án stórstyrjaldar.