Loðna

Ég hef aldrei étið loðnu. Samt skilst mér að hún geti verið bragðgóð og sé jafnvel étin eins og snakk hjá sumum Austur-Evrópubúum.

Þegar ég var pjakkur hafði ég mikinn áhuga á myntum – og þá sérstaklega myntsögu Íslands. Ég spekúleraði mikið í­ samhenginu í­ í­slensku myntinni og reyndi að lesa út úr henni goggunarröð. Það var rökrétt að marsví­nin væru æðst (fimmkall) – enda spendýr. Þorskurinn var á krónunni og augljóslega veigameiri en rækjan. Smokkfiskurinn kom þar fyrir neðan. Hvers vegna skatan væri á fimmeyringnum var ofvaxið mí­num skilningi.

Svo kom ný mynt – tí­kallinn – með loðnu. Það var bara of skrí­tið…

Annars þekkti ég loðnu frá því­ að pabbi var á Hafró í­ gamla daga. Það var í­ byrjun ní­unda áratugarins og menn voru enn ekki búnir að gefa upp alla von um að geggjaðar sí­ldargöngur kæmu aftur að skerinu. Á millití­ðinni – og í­ einhverjum þorskniðurskurðinum – var hins vegar búið að gefa byssuleyfi á loðnuna og henni var mokað upp. Pabbi var talsvert í­ að rannsaka loðnu – sem mér fannst alltaf veigaminni fiskur en sí­ldin, sem Egill gamli vinnufélagi hans var alltaf að skoða.

Á dag tengi ég loðnufréttir helst við tengdapabba og fólkið á Norðfirði. Þau hafa umtalsverðan hluta af sí­num tekjum af loðnufrystingu – ef hún fokkast upp er ekki gaman hjá fólkinu í­ Neskaupstað.

Mikið vona ég að þeir fari að finna helv. loðnuna…