Þvagleggurinn

Á dag fjallaði ég um Benjamin Franklin á Rás 1. Mér tókst ekki að koma að þeim umdeilanlega fróðleiksmola að hr. Franklin hafi fundið upp þvaglegginn.

# # # # # # # # # # # # #

Sumarið kom snemma. Ég hafði einsett mér að byrja að safna skeggi á fyrsta vetrardag og raka það á sumardaginn fyrsta.

En um helgina var of hlýtt. Ég gekk um bæinn með barnið í­ kerru og hugsaði – það er komið vor!

Og í­ dag lét ég klippa mig og raka.

Pólski hárgreiðslumaðurinn hjá Dóra á Hótel Sögu dútlaði út í­ hið óendanlega við hárið á mér og svo rakaði hann skeggið af. Hann skildi eftir yfirvaraskegg – hló og sagði „þú ert eins og Michael Schumacher“ – ég hló með, þótt ég skildi að hann ætti við Tony Schumacher.

Og ég var bara fjári lí­kur ófétinu Tony Schumacher….

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn á tvo daga eftir á þingi. Þá mun Paul Nikolov taka við. Ansi stí­fri törn er blessunarlega að ljúka, þar sem Steinunn er á sí­ðustu dropunum. Nú munu taka við ansi margir hví­ldardagar þar sem hún reynir að leggja ekkert á sig.

Ég er ofboðslega stoltur af frúnni að hafa staðið þetta af sér. Á tveimur mánuðum tókst henni að mæla fyrir lagafrumvörpum, þingsályktunartillögum og lenda í­ þrefi við þrjá ráðherra. Mælendaskráin hennar á þinginu sýnir að hún hefur talað í­ rúma klukkustund á þessum tveimur mánuðum. Það er umtalsvert meira en margir fastir þingmenn.