Þvinguð hjónabönd

Luton komst í­ sjónvarpsfréttirnar í­ kvöld. Ekki vegna afreka á knattspyrnusviðinu – enda fer lí­tið fyrir slí­ku – heldur vegna þess hversi mikið væri um þvinguð hjónabönd í­ borginni. (Reyndar er Luton skilgreind sem bær en ekki borg.)

Auðvitað er það hörmulegt þegar ungt fólk er pí­nt í­ ástlaus hjónabönd af fjölskyldu sinni, til að uppfylla einhverjar siðvenjur og gamlar hugmyndir um heiður fjölskyldunnar.

Auðvitað ættu Bretar að hrinda af stokkunum átaki gegn þessari óáran.  Ég geri það að tillögu minni að Karl Bretaprins verði gerður að verndara þess.

# # # # # # # # # # # # #

Og talandi um Luton. Það stefnir í­ að met félagsins um flesta leiki í­ röð án sigurs verði slegið innan tí­ðar. Við skoruðum sí­ðast meira en eitt mark í­ leik 27.október! TURK-182