Á dag er merkisdagur fyrir stjörnufræðiáhugamenn. Það var á þessum degi árið 1781 sem William Herschel uppgötvaði með stjörnusjónaukanum sínum nokkuð sem hann taldi í fyrstu að væri fjarlæg halastjarna, en sá síðar að hlyti að vera ný reikistjarna.
Pláneta Georgs (hins þriðja – konungs Breta) var tillaga Herchsels að nafni þessarar nýju plánetu. Meginlandsbúar vildu hins vegar ekki púkka upp á enskan kóng og vildu halda sig við goðafræðinöfnin. Úranus var því nafnið sem festist í sessi.
Eitthvað segir mér að þessi kvikmynd dragi ekki upp raunsanna mynd af lífinu á Úranusi.
# # # # # # # # # # # # #
Og já – meðan ég man.
Allir góðir menn mæta á Ingólfstorg kl. 13 á laugardaginn á alþjóðlegan aðgerðadag gegn stríðinu í írak. Allt um það hér.