Á heimasíðu Víkings stendur þessi klausa:
„Vissir þú… – ...að aðalkeppnisbúningur Víkings hefur verið sá sami frá stofnun félagsins?“
Þetta gengur upp miðað við það að fyrstu meistaraflokkslið Víkings voru í hinum klassíska svart/rauðröndótta búningi í upphafi þriðja áratugarins.
En voru Víkingar alltaf í þessum búningi? Á skjalasafni íBR rakst ég á samþykkt frá árinu 1938 varðandi búning félagsins. Honum var lýst á þessa leið: „Dumbrauðar skyrtur með svörtum kraga og svörtum uppslögum á ermum, ennfremur er merki félagsins saumað í vinstri barm skyrtunnar. Svartar einlitar buxur.“
Kannast lesendur við þennan búning?