Þegar ég mætti í vinnuna í morgun blasti við fögur sjón. Iðnaðarmennirnir vösku eru í óða önn að rífa burt einangrunarplastið og krossviðarplöturnar, en setja þess í stað gler í nýja andyrið okkar hér á Minjasafninu. Með þessu áframhaldi stefnir í að hægt verði að ganga inn í húsið á réttum stað í næsta mánuði og loka þá þessum ömurlega bráðabirgðainngangi sem við höfum mátt þola í hátt á annað ár.