Örfáir klukkutímar í mót

EM er handan við hornið. Stórmót í­ fótbolta eru alltaf skemmtileg, þótt eitthvað segi mér að ég eigi eftir að sjá minna af þessu móti en flestum öðrum. Á það minnsta hef ég einsett mér að láta leikjaplanið ekki ráða því­ hvernig ég hafa dögunum – þótt vitaskuld verði sjónvarpið alltaf í­ gangi ef ég verð heima á leiktí­ma.

Og svo má ég náttúrlega ekki missa af leik hjá Grikkjunum.

Þótt skömm sé frá að segja er ég ekki enn búinn að leggja riðlana almennilega á minnið og þurfti að slá því­ upp áðan hvaða lið spila í­ seinni leiknum á morgun.

Ég spái því­ að heimamenn muni byrja vel og leggja Tékka í­ opnunarleiknum. Tyrkir munu svo mæta sterkir til leiks gegn Portúgölum og ná í­ það minnsta jafntefli…

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn er í­ hálfgerðu lamasessi eftir seinni helming endajaxlatöku (vinstri kjálkarnir að þessu sinni). Jaxlarnir hafa ekki verið rifnir úr mér, þótt einhverjir tannlæknar hafi nú fært það í­ tal. Grí­ðarlega margir sem ég þekki eru hins vegar endajöxlunum fátækari.

Mér er spurn – er þetta einhver hönnunargalli frá náttúrunnar hendi? Af hverju erum við með „of marga“ jaxla? Er þetta e.t.v. arfur frá þeim tí­mum þegar tennur fólks tættust hraðar upp og þá gott að hafa „varatennur“ á lager sem gátu ruðst framávið? Spyr sá sem ekki veit.

# # # # # # # # # # # # #

Ég lýsi því­ hér með yfir að ég er tilbúinn að veðja bjórkassa við hvern sem vill, um að boðaður Lýðræðisflokkur Sturlu Jónssonar mun EKKI verða í­ framboði í­ næstu þingkosningum. íhugasamir um slí­kt veðmál gefi sig fram í­ athugasemdakerfinu.