Það virðist frágengið að Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir taki við Skagaliðinu sem spilandi þjálfarar.
Þar með opnast möguleiki á sérstæðri atburðarás.
Segjum sem svo að FH landi Íslandsmeistaratitlinum – sem telja má líklegt. Og að Skaganum takist ekki að rétta úr kútnum – þá myndu þeir bræður afreka það að verða Íslandsmeistarar OG falla niður um deild.
Það efast ég um að öðrum hafi tekist.