Þegar ég villist inn á Útvarp Sögu í bílnum mínum, þá finnst mér eins og ég lendi alltaf á sama dagskrárliðnum: hugvekju frá fulltrúa Frjálslynda flokksins.
Og koma tveir menn til greina – annars vegar Jón Magnússon, sem talar yfirvegaðri röddu og flytur skipulega uppbyggðan pistil. Eins og maður er nú oft ósammála Jóni, þá er eitthvað seiðandi við röddina hans og pistlarnir eru virðast sannfærandi – amk ágætlega rökstuddir.
Hins vegar er það Eiríkur Stefánsson. Hann öskrar.
Dæmigerður pistill er eitthvað á þessa leið:
Núna sé ég það í fréttum að það er verið að safnast saman til að mótmæla (illri meðferð á flóttamönnum,/ójafnri stöðu samkynhneigðra í þjóðfélaginu/stríðinu í írak/gróðurhúsaáhrifunum/setjið-inn-málstað-að-eigin-vali). Þarna vantar ekki silkihúfurnar. Þarna eru allir þessir vinstri-grænu-samfylkingarmenn (röddin byrjar að bresta)… Og þau segjast vera að mótmæla mann-réttinda-brotum… – (stutt þögn)
– og það er svo sem gott og blessað. Að tala um þetta… – Það getur vel verið að þetta sé ofboðslega slæmt…
en við þetta fólk hef ég bara eitt að segja: HRÆSNARAR!!! – HVERNIG GETIí ÞIí TALAí UM MANNRÉTTINDABROT ÞEGAR ÞIí ERUí EKKI Aí MÓTMÆLA KVÓ-TA-KERF-INU!!! ARRRGH!
HÉR ER VERIí Aí NííAST Á HARíDUGLEGUM SJÓMÖNNUM – EN ÞETTA „´FíNA FÓLK“ ER BARA Aí TALA UM HOMMA EíA ÚTLENDINGA.
HVAR VORUí ÞIí ÞEGAR 14 MANNS Á FRJíLSLYNDAFLOKKNUM STÓíUÂ MEí MÓTMÆLASKILTI GEGN KVÓTAKERFINU??? ARRRGH!!! VINSTRI-GRÆNA-SAMFYLKINGARPAKK! Jí, PAKK- ÞVÁ HVAí ER ÞAí ANNAí EN PAKK SEM HUGSAR UM SAMKYNHNEIGíA OG ÚTLENDINGA EN BERST EKKI GEGN MANNRÉTTINDABROTUM Á SíNU EIGIN LANDI!!! HRÆSNARAR – ÚRSKURíUR MANNRÉTTINDANEFNDAR – SVIKAMYLLA – REYKJAVíKURVITLEYSINGAR… (erfitt að heyra orðaskil, þar sem maðurinn öskrar þetta í hljóðnemann)…
Þessi fyrirlestur hefur verið fluttur með nokkrum tilbrigðum á Útvarpi Sögu síðustu mánuðina. Ég verð reyndar alltaf jafn kátur þegar ég hlusta á hann og geri mér í hugarlund einhvern talsmann Samtakanna 78 hella sér yfir Eirík, þar sem hann stendur með skiltið „Ú á LíÚ“ á Austurvelli, með orðunum: „HVAí MEINARíU MANNFíLA – Aí ÞÚ HAFIR EKKI MÆTT Á GAY PRIDE SííAST??? OG SAMT VOGARíU ÞÉR Aí HAFA SKOíUN Á FISKVEIíISTJÓRNUNARKERFINU??? ERTU SIíBLINDUR???“
Ef marka má hinar kúnstugu umræður um hvort sé svalara – alþýðuhetjan Bubbi eða umhverfishippinn Björk – þá virðist hins vegar röksemdafærsla Eiríks Stefánssonar vera að ganga oní ansi marga…