Kláraði í gær þrekvirkið The Ball is Round eftir Goldblatt. Aðdáun mín á bókinni dvín ekki, þótt auðvitað séu sumar tengingarnar nokkuð langsóttar. Það væri skemmtilegt að sjá íslenska knattspyrnu- og stjórnmálasögu sagða svona í einu verki.
Á einum stað í þessu rúmlega 900 síðna verki um sögu knattspyrnunnar er Ísland nefnt á nafn. Það er í upptalningu yfir þau fjarlægu lönd sem grískir fótboltaáhugamenn veðja á í knattspyrnugetraununum sínum.
Færeyjar komast tvisvar á blað – í bæði skiptin í algjöru framhjáhlaupi.
Við erum svo sem ekki nafli alheimsins í knattspyrnumálum…