Gamli jaxlinn, Don Hutchison, lék með Luton síðasta keppnistímabil. Hann lenti reyndar í meiðslum og kom ekki mikið við sögu, en náði þó nokkrum minnisstæðum leikjum.
Félagið lenti í greiðslustöðvun og leikmenn fengu ekki laun um allnokkurt skeið. Þá hafði Hutchison forgöngu um að eldri og efnaðri leikmenn liðsins hlypu undir bagga hjá ungu strákunum í varaliðinu sem voru á lágum launum og máttu ekki við tekjumissinum.
Á dag var upplýst að Hutchison hafi ákveðið að afsala sér síðustu launagreiðslunum frá Luton til að hjálpa félaginu í vandræðum sínum – og það sem meira er, í kveðjuskyni hefur hann boðist til að standa straum af kostnaðinum við tvo unga leikmenn í yngriflokkastarfi félagsins.
Þetta kalla ég að kveðja með reisn. Lengi lifi Don Hutchison!