Þegar ég var í MR, var alltaf nokkuð um að nemendur (eiginlega bara strákar), tækju upp á því að skrifa með zetu. Þetta þótti sumum ægilega fínt og töff. Ekki veit ég hvers vegna.
Verra var að í langflestum tilvikum kunnu þessir spjátrungar ekki að beita z-reglunum rétt. Það er fátt hallærislegra en fólk sem ræður ekki við eigin stæla.