Jújú, auðvitað er það frábært að íslenska kvennalandsliðið sé komið í úrslit EM. Því fagna allir góðir menn.
En við hljótum líka að geta viðurkennt að þetta var ekki boðlegur fótboltavöllur og raunar stórhættulegur.
Ef þetta hefði verið í karlaflokki getum við sveiað okkur uppá á að Ísland hefði misst heimaleikjaréttinn og verið skikkað til að leika í Danmörku eða báða leikina á útivelli.