Á síðasta fundi miðnefndar SHA var rætt um kynningarmál. Miðnefndarmenn reyndust hafa tröllatrú á netinu fyrir hvers kyns auglýsingar og kynningar – þar á meðal Facebook, sem ég hef aldrei viljað koma nálægt.
Á kjölfarið var formaðurinn skikkaður til að stofna Facebook-síðu, sem ég varð vitaskuld að hlýða.
Fyrir vikið er ég kominn á Facebook. Sem er hálfpartinn eins og að byrja að reykja á gamals aldri.
# # # # # # # # # # # # #
Tap gegn Southend í bikarkeppninni í gær. Skoruðum þó loksins mark eftir langvina markaþurrð.