Sjónvarpið fær stóran plús í kladdann fyrir jóladagatalið í ár.
Oft hafa jóladagatölin verið rýr í roðinu – en ævintýri seinheppna alþýðumannsins Dýrmundar standa fyrir sínu.
Ekki hvað síst vegna þeirrar fléttu að velja illan mannauðsstjóra sem erkiþrjótinn. Og ekki spillir fyrir að mannauðsstjórinn sé kvenkyns og heiti Auður Mannfreðs – þetta er eins og klippt útúr Andrésblaði.
Svo er ég ánægður með að Sjónvarpið haldi áfram á þeirri braut að reyna að rétta hlut rotta í dagatalinu. Besti vinur Dýrmundar er snjalla rottan Rottó. Hún er mun viðfelldnari en nasistarottan sem leit út eins og Hitler og talaði ekki ósvipað, sem var í burðarhlutverki fyrir nokkrum misserum.
Get ekki beðið eftir lokaþættinum. Skyldi seinheppni alþýðumaðurinn ná að kaupa gjöf fyrir þurftafreku kærustuna? Mun tunglið vaða í skýjunum?