Ráðgjafar um heimilisfjármál spretta upp eins og gorkúlur. Margt í boðskapnum þeirra verður seint talið eldflaugavísindi – s.s. ráðleggingar þess efnis að reyna að losa sig við yfirdráttin og helst að nota kreditkortið sem minnst.
Jújú…
Annað sem fjármálaráðgjafarnir leggja áherslu á, er að maður reyni að borga e-ð lítilræði til viðbótar inná höfuðatól lána við hverja afborgun.
Gott og vel – nú er að koma að afborgun á Annuitets-íbúðasjóðsláni heimilisins og því um að gera að taka fjármálamógúlana á orðinu. Nema hvað – ég sé ekki að það sé hægt að breyta upphæðinni á greiðsluseðlinum í netbankanum til að hækka upphæðina. Er hægt að redda þessu í gegnum tölvu að heiman eða verð ég að mæta í örtröðina í bankanum á gjalddaga? Því nenni ég fjandakornið varla…