Á dag gerðist ég svo frægur að aka niður Válastíg. Þá hef ég eitthvað til að segja barnabörnunum…
Jafnframt labbaði ég heilan hring undir heitavatnstönkunum á Öskjuhlíð. Það var skemmtilegt – en þó einhæft.
Síðast en ekki síst fékk ég að skoða inn í tvíburaturnana á Freyjugötu.
– Sem sagt helvíti fínn dagur í vinnunni!