Hörður Torfason hefur fengið á baukinn í fjölmiðlum í dag. Ummæli hans voru klaufaleg og vanhugsuð – ekki hvað síst í ljósi þess að hann mátti vita hversu viðkvæmt tilefnið væri.
Það var kjánalegt að nota orð eins og „reyksprengjur“ í þessu samhengi. Væntanlega mun Hörður senda frá sér yfirlýsingu þar sem hann biðst afsökunar á því ef orð hans hafa valdið sárindum – og málið ætti þá að vera úr sögunni. Ummælin fara þá í fríðan flokk vanhugsaðra setninga á borð við „sætustu stelpuna á ballinu“ – sem ýmsir muna kannski eftir.
Hitt er hins vegar annað mál að Hörður hafði að sumu leyti á réttu að standa – það er, þegar hann reyndi (með slæmum árangri) að orða þá hugsun að hér væri verið að slá saman einstaklingsharmleik og stjórnmálum á óeðlilegan hátt.
Það er nefnilega afar undarlegt við yfirlýsingu þá sem Geir Haarde las í hádeginu, að þar er sú ákvörðun þingflokks Sjálfstæðismanna að stefna beri að kosningum 9. maí einvörðungu tengd við veikindi Geirs. Hún er ekki rökstudd með því hversu breyttar forsendur sé nú frá síðustu kosningum, mikilvægi þess að afla nýs umboðs fyrir stórar ákvarðanir, óánægju almennings eða stjórnmálaástandsins almennt. Allt hefðu þetta þó talist gildar ástæður.
Maður efnir ekki til þingkosninga af því að einn maður veikist. Jafnvel þótt hann sé forsætisráðherrann og sjúkdómurinn sé grafalvarlegur. Það gengur bara ekki upp.
En þetta má ekki segja, því þá er strax risinn upp hópur fólks sem telur illa vegið að sjúkum manni. Og þeir sem vildu kosningar segja heldur ekki neitt – telja að það skipti ekki máli hvaðan gott komi.