Hversu oft höfum við ekki fengið að heyra það síðustu vikur og mánuði að það megi ekki persónugera vandann! Á þessu var hamrað af ráðamönnum – sérstaklega þó Sjálfstæðismönnum.
Einmitt þessvegna mun enginn skynsamur maður hlusta á þessar bullhugleiðingar Eiríks Bergmanns sem lætur sér detta í hug að mótmæli síðustu vikna snúist um persónu Geirs Haarde og því sé sjálfhætt þegar Geir veikist.
Okkur dettur ekki í hug að persónugera vandann með slíkum hætti – og einmitt þess vegna eiga fregnir af heilsufari forsætisráðherra engin áhrif að hafa á mótmælin. Þau munu halda áfram af fullum krafti.