Krókur á móti bragði

Nú eru uppi vangaveltur um hvort rí­kisstjórnin sem senn tekur við eigi eða eigi ekki að afturkalla hvalveiðikvótann sem Einar K. Guðfinnsson gaf út á lokaklukkustundum sí­num í­ embætti.

Þetta eru þarflausar vangaveltur.

Legg frekar til að gefin verði út viðbótarreglugerð – þess efnis að hvalveiðimönnum verði sem fyrr heimilað að drepa 150 dýr… enda verði þeim slátrað í­ löggiltu sláturhúsi undir eftirliti dýralæknis og/eða heilbrigðisfulltrúa.

Vandinn leystur!