Á mánudaginn rennur upp sá dagur ársins sem helstu brestirnir í hjónabandi okkar Steinunnar koma fram. Það er bolludagurinn.
Þann dag borðum við bollur – af því að við föllum fyrir áróðri Landssambands bakarameistara þess efnis að það geri okkur að betri Íslendingum.
Vandinn er hins vegar sá að ég vil borða almennilegar bollur eins og heiðvirt fólk: gerdeigsbollur með rjóma og sultu.
Steinunn vill borða vatnsdeigsbollur með búðingi.
Mér sýnist að lausnin sé fundin að þessu sinni. Við verðum með tvöfalt kerfi í bollukaffinu. Gerdeigsliðið fær eldhúsið – vatnsdeigshópurinn stofuna.
# # # # # # # # # # # # #
Og talandi um Steinunni. Hún er á leið í forval – og nýjasti samkvæmisleikurinn í tengslum við slíkar uppákomur eru Facebook-stuðningssíður. Þar skrái sig allir góðir menn!