Guðbjörn Guðbjörnsson býður sig fram í prófkjöri íhaldsins á Suðurlandi, eins og lesa má um í þessar Moggafrétt.
Það væri ekki í frásögur færandi, nema að af fréttinni má ráða að Guðbjörn sé ekki allur þar sem hann er séður. Þar er námsferill frambjóðandans er rakinn: „írið 2008 lauk hann meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og er því stjórnsýslufræðingur að mennt. Þá lauk hann burtfararprófi í óperusöng árið 1986. Hann stundaði framhaldsnám í Austur-Berlín og lauk svo að eigin sögn námi frá „Óperustúdíóinu“ í Zí¼rich í Sviss árið 1989. Þessu til viðbótar lauk hann prófi í þýsku árið 2006 og prófi frá Tollskóla ríkisins árið 2000.“
Þessi klausa vekur fleiri spurningar en hún svarar.
Hvað á Morgunblaðið við, þegar það tekur sérstaklega fram að Guðbjörn hafi „að eigin sögn“ lokið söngnámi í Sviss? Hvers vegna sér blaðamaður ástæðu til að reka þennan varnagla? Og af hverju eru gæsalappir utan um „Óperustúdíóið“?
Erum við að tala um nýjan Gísla Marteins-skandal? Er Guðbjörn Guðbjörnsson hinn nýi Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson? Maður spyr sig…
Ég er amk þegar orðinn sannfærður um að hér fari frambjóðandi með óhreint mjöl í pokahorninu.