Skjallbandalög eru þekkt fyrirbæri í netsamfélaginu og fram hjá þeim verður líklega seint komist.
Engu að síður held ég að það væri mjög til bóta ef þeir sem stunda þessa iðju settu sér einhvers konar siðareglur – sem fælu það í sér að menn reyndu í það minnsta að fela slóðina…
Tökum dæmi:
Aðalfrétt Pressunnar (í þessum rituðum orðum) er „Össur segir Sjálfstæðisflokkinn í upplausn!“Â – Með öðrum orðum – kjaftaskúmur í stjórnarliðinu gefur lítið fyrir stjórnarandstöðuna… fréttirnar gerast nú ekki mikið stærri. Hvað næst? Geir Haarde segir ríkisstjórnina slappa? Aðdáendaklúbbur Duran Duran lýsir frati á Wham?
Nema hvað – á sama tíma setur Össur Skarphéðinsson inn færsluna „Pressan flýgur!“Â Þar kemur fram að Össuri finnist Pressan vera æði – og að hann hafi allar upplýsingar sínar um veröldina frá Eyjunni og Pressunni. Kvartar reyndar yfir því að þurfa að lesa á norsku, þar sem miklu betra sé að lesa bara á ensku og íslensku…
Hér hefðu siðareglur skjallbandalaga komið að góðum notum. Það hefði verið mun minna sjoppulegt ef Össur og Pressan hefðu látið líða eins og 24 klukkustundir á milli skjallgreinanna!