Sigur veðurfræðinganna

Á kvöld efndu Orkuveitan og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness til stjörnuskoðunar í­ Elliðaárdalnum. Spáforrit Veðurstofunnar sagði að það yrði gott veður til slí­kra hluta og við trúðum ví­sindamönnunum.

Allan daginn kyngdi niður snjó og skýin voru yfir öllu. Sí­mtölum rigndi yfir mig af kollegum og fólki utan úr bæ sem spurði hvort nokkur von væri til þess að samkoman færi fram. Við sögðumst ekki ví­kja.

Hálftí­ma áður en dagskráin átti að hefjast, hurfu öll ský af himninum. Það var varla hægt að hugsa sér betra skyggni til stjörnuskoðunar!

Palli vinnufélagi minn, sem kom með kakóið og flatbrauðsneiðarnar með hangikjötinu fyrir gestina gat varla komið upp orði, hann hló svo mikið. Sagði að þetta væri mesti grí­s sem hann hefði séð á ævinni – var greinilega undirbúinn undir að fara heim með hverja einustu brauðsneið ósnerta. Ég leiðrétti hann og benti á að þetta hefði ekkert með heppni að gera, bara trú á veðurfræðingum.

Hann var ekki sannfærður.

# # # # # # # # # # # # #

L-listinn er að gera mistök með því­ að velja sér ekki eitthvert annað nafn. Á daglegu tali mun þetta nefnilega heyrast eins og „Ellilistinn“. Það kann varla góðri lukku að stýra…

# # # # # # # # # # # # #

Luton er komið í­ tveggja stafa tölu eftir markalaust jafntefli gegn Gillingham á Kenilworth Road í­ kvöld. Tí­u stig og bara þrettán umferðir eftir.

Bournemouth er á sigurbraut, þótt allt sé í­ steik í­ peningamálunum þar á bæ. Núna er liðið komið upp fyrir Grimsby og þar með út fallsæti. Við erum þrettán stigum á eftir Grimsby og sautján stigum á eftir Chester, sem bæði eru í­ frjálsu falli. Bournemouth er með fjórtán stigum meira, en virðist vera að klára sig vel.

Um daginn sagði ég að 20.mars væri krí­tí­ska dagsetningin fyrir greiðslustöðvanir liðanna í­ deildinni, hið rétta er ví­st að 26.mars er stóri dagurinn. Hver vika sem lí­ður án þess að Bournemouth finni nýja eigendur eykur þó á vandræði þeirra og setur Chester jafnframt í­ meiri klemmu.

Að vinna upp sautján stig í­ þrettán leikjum er fjári mikið. Vonir okkar hljóta því­ eiginlega að standa og falla með því­ að önnur félög fari á hausinn – sem er hvorki göfugt né áreiðanlegt.