Þriðji sigurleikurinn í röð hjá Luton, að þessu sinni 1:2 gegn Morecambe. Að öllu jöfnu ætti þetta að leiða til mikillar gleði og hamingju, en úrslit dagsins urðu þó lítið fagnaðarefni.
Grimsby hélt sigurgöngu sinni áfram og er ennþá ellefu stigum á undan okkur – en núna eru aðeins sjö leikir eftir til að brúa bilið. Það er til lítils fyrir okkur að vinna leikina ef keppinautarnir gera slíkt hið sama…
Chester gerði markalaust jafntefli og er núna aðeins átta stigum á undan. Öllum ber saman um að Chester sé eitthvert lélegasta lið sem sést hefur í deildinni, auk þess að vera nálega gjaldþrota.
Bournemouth er með tólf stigum meira og Barnet fjórtán stigum meira. Það er eiginlega utan seilingar. Einkum þar sem Nicholls fyrirliði er á leiðinni í fimm leikja bann fyrir að æsa upp áhorfendur.
En þrír sigrar í röð er fjári gott og gefur góðar vonir fyrir úrslitaleikinn á Wembley eftir viku.