Á morgun getur Luton fallið endanlega út úr deildarkeppninni. Það gerist ef Grimsby vinnur og Luton gerir jafntefli eða tapar.
Þótt möguleikinn á að hanga uppi sé bara tölfræðilegur, þá leyfir maður sér alltaf að halda í vonina framundir það síðasta. Ég gæti því orðið nokkuð hnugginn um kaffileytið á morgun. – En þá er bara að byrja að hugsa um íslenska boltann…